send link to app

Netgíró


4.6 ( 4496 ratings )
Diensten Financiën
Developer: Moberg d.o.o.
Gratis

Betri leið til að borga – með Netgíró appinu er hægt að greiða fyrir vöru og þjónustu á öruggan og
einfaldan máta með símanum þínum.

Þegar borgað er með Netgíró appinu skannar söluaðili strikamerkið sem birt er í símanum. Áður en greiðsla er staðfest með skönnun á strikamerkinu velur þú greiðslumátann þ.e. kreditkortið þitt eða 14 daga greiðslufrest eða raðgreiðslur af Netgíró heimild þinni. Með því að láta skanna inn strikamerkið ertu að samþykkja valinn greiðslumáta.
Í appinu er hægt að sjá hvaða fjárhæð er til ráðstöfunar og hvaða heimild þú ert með hjá Netgíró.

Einnig er aðgengilegt yfirlit yfir alla reikninga bæði greidda og ógreidda og þar er hægt að skoða ítarupplýsingar um hver kaup fyrir sig. Skilmálar Netgíró eru ávallt aðgengilegir í valmynd auk þess sem einfalt er að breyta PIN-númeri appsins.